bloggidí bloggElísa Kristín Arnarsdóttir
Jæja þá er líklegast löngu kominn tími á að skrifa eitthvað hér á þessa síðu. Ég er komin heim frá Hollandi og búin að vinna í 3 vikur. Tónleikarnir með Robbie voru náttúrulega bara snilld :) Við fórum af stað um hálf ellefu frá Eindhoven og tókum lestina til Amsterdam. Þegar við vorum komin á Amsterdam Centraal þá fórum við og borðurum hollenska hamborgara sem eru nú ekkert sérstakir en maður lét sig hafa það. Spennan var rosaleg og ég var alveg æst í að fara bara upp úr eitt upp að tónleikahöllinni í röð til að vera fremst:) En fyrst var nú farið í gegnum rauðahverfið og kíkt á hórunar;) nei nei við löbbuðum bara þar í gegn til að komast að kirkju sem er búið að breyta í veitingastað, rosalega flott. Í Amsterdam er fjöldinn allur af fólki og þá af ýmiskonar fólki, held að ég myndi ekki vilja búa þarna. Annars um 3 fórum við af stað upp að Amsterdam Arena þar sem tónleikarnir voru og við héldum að við værum á nokkuð nettum tíma fyrst því þá sáum við bara inngangana í stúkuna. Ekki leist mér á blikuna þegar við komum að inngangi G því þar var allsvakalega löng röð. Við fórum inn um inngan J og þar var ívið styttri röð en þegar það var byrjað að hleypa inn kl 16 þá var röðin vel á annan kílómeter án djóks! Mikil spenna var í fólki og höfðu einhverjir mætt ansi snemma um morguninn því maður óð svoleiðis vindsængur, stóla og mat upp að hnjám, alveg ótrúlega mikið drasl bara við þennan inngang! Loksins komumst við inn og þá var sprettað upp stigann og labbað ansi rösklega inn´a leikvanginn því ekki mátti hlaupa;) Ég hef aldrei komið inn á svona stóran leikvang, hann var alveg huges:) Við komumst í innsta hólfið og vorum MJÖG framarlega eins og sést á 140 myndum sem voru teknar af kónginum sjálfum Robbie. Við stóðum strait frá 16 til 00 takk fyrir pent og það var frekar heitt en samt aldrei of heitt :) Upphitunarhljómsveitin Orson kom á svið 18:30 og hún var nú bara ekkert sérstök. Klst síðar komu svo Basement Jaxx sem er bara SNILLDAR hljómsveit, náðu upp ótrúlegri stemmningu. Kvennsurnar skiptum um föt fyrir hvert lag og voru ótrúlega töff :) allt mekrt puma þannig að maður vissi alveg hver væri að sponsora þau;) LOKSINS LOKSINS tíumínútur fyrir 9 kom kóngurinn og sviðið og það ætlaði allt um koll að keyra. Þvílíku sprengjurnar og showið þegar maðurinn kom upp úr sviðinu og söng Radio. Hann spilaði í 2 tíma og þá átti maður eftir að koma út. Ég get sagt ykkur það að það var alveg þess virði að hanga í heilan dag á netinu til að kaupa miða í október á tónleika í júní:) það var líka alveg þess virði að standa strait í 8 tíma til að berja goðið augum. Þetta var ekkert smá show og ótrúlega gaman þegar vinur hans Jonny kom og söng lög með honum. Eftir rúma klst þá bara allt í einu eftir Feel segir Robbie takk og góða nótt og hvarf niður í sviðið. Ég var alveg miður mín að þetta væri búið og hann hafði ekki tekið Angels eða Let me entertain you og fleiri lög og svo allt í einu birtist maðurinn úr loftinu og byrjaði á Let me entertain you og það gjörsamlega sturlaðist allt:) Síðan kom Angels og það var náttúrulega bara snilld að heyra 60þúsund manns syngja þetta eina lag með kónginum, alveg ótrulegt og þvílíkur hrollur fór um mann. Robbie fannst greinilega gaman á þessum tónleikum því hann tók svo í lokin Kid sem var ekkert svakalega vel æft en allt extra var vel tekið:) Algjör snilldar dagar og næst þegar hann verður á tónleikaferðalagi þá ætla ég að kaupa miða á alla tónleikana sem hann verður með í Amsterdam, bara taka 4xRobbie :) hehe En verst er að hann hitti einhverja íslenska stelpu í Köben og er svona yfirsig ástfanginn af henni:) en þá er líka meiri von á að hann komi til Íslands einhverntíman með tónleika:)jæja læt þetta duga í bili, ligg heima með einhvern vírus og er búin að vera frá vinnu í 3 daga og fer ekki heldur á morgunn... ég var að vonast til þess að maður yrði ekki veikur á sumrin bara á veturna;)
bið að heilsa ykkur og endilega kvittið:)
kv Elísa
p.s ég kann ekki að setja inn myndir á þetta blogg, ef einhver kann það þá er sú hjálp vel þegin:)
Robbie á morgunn:)Elísa Kristín Arnarsdóttir
Hæ hæþá er ég komin til Hollands og loksins, LOKSINS eftir nokkra mánuða bið þá fæ ég að sjá hann Robbie minn:) OHHHH ég hlakka svo mikið til að ég er bara með hnút í maganum. Við ætlum af stað héðan örugglega í hádeginu á morgunn og eitthvað kannski að flakka í Amsterdam og svo á að mæta fyrir utan völlinn kl 17 því þá opnar hann og ég skal sko segja ykkur það að ég ætla að vera FREMST og ég skal sjá Robbie live :) hehehe þetta er svo spennandi, mig er búið að dreyma robbie núna alllar nætur :)
Ég er aðeins búin að fara í bæinn en það er ekkert spennandi að sjá, nema kannski skór eða eitthvað en eitthvað lítið um föt. Það eru útsölur núna þannig að það er bara eitthvað drasl í búðunum, því miður en ég á svo sem ekkert lítið af fötum þannig að þetta er allt í lagi;)
En ég ætla að fara að kaupa mér inniskó, bandið á adidas skónum mínum slitnaði í annað skiptið í gær þannig að ég held að það sé í lagi að láta þá gossa :)
endilega kvittið
elísa
nú er komið sumar, sól í heiði skín;)Elísa Kristín Arnarsdóttir
já vonandi er sumarið komið til Akureyrar :) Ég er byrjuð að vinna á tannlæknastofunni og það er alveg rosalega skemmtilegt :) Ég er náttúrulega alveg eins og trúður þarna því ég veit ekki neitt, nöfnin á áhöldunum og svo þetta lím og hinsegin lím. Stundum bara gjörsamlega hringsnýst ég um sjálfa mig ;) En ég hef fengið að fylgjast með ýmsum aðgerðum sem er náttúrulega bara spennandi, endajaxlaaðgerðir og svo implant aðgerð:)Svo er ég að fara til Hollands á mánudaginn og get ekki beðið :) Svo er það hann Robbie minn eftir örfáa daga og miðarnir komnir í hús og komin fiðrildi í magan:) Þetta verður svo gaman og ég hlakka ekkert smá til að sjá goðið:) Ég verð pottþétt fremst hehe:)
Annars gengu prófin bara nokkuð vel :) Lægast einkunn var 8,5 í verkl. efnafr og bitfræði, annars var ég bara með 9 og svo tvær 9,5 í fögunum sem gilti mest, lífrænni efnafr og anatómíu:) heh oj ég er svo mikið nörd en er samt ekkert smá
ánægð með þetta :) vissi ekki að ég gæti þetta en það er alltaf gaman að koma sjálfum sér á óvart :)
En ég hef voða lítið að segja,endilega kommentið og þá lofa ég að ég verð duglegir að skrifa ;)
kv Elísa
HollandElísa Kristín Arnarsdóttir
Jaeja tha er eg komin til Hollands og thad er alveg rosalega gaman herna. Erna og Oli voru ad fa ser nytt hus og thad er ekkert sma stort og rosalega flottheh eg verd ad segja ykkur eitt. Eg for i gaer ad kaupa mer rosalega flotta puma sko og fekk lika einhver ofur innlegg med. Sidan er eg rosa anaegd og fer heim og er eitthvad ad skoda innleggin og svoleidis og se einhvern mida i kassanum. Eg kiki a hann og tha stendur eftirfarandi:
Call me, the Shopman og svo simanr... heh eg helt ad eg myndi deyja ur hlatri tegar eg sa tetta. En tvi midur var hann ekki svo myndarlegur tannig ad mer fannst tetta bara meira vandraedalegt en eitthhvad annad
en jaeja her er verid ad glamra a piano og eg er ad verda gedveik, aetla ad flyja. Se ykkur sidar
Elisa
Prófin búin:)Elísa Kristín Arnarsdóttir
Jæja þá eru þessi elskulegu próf búin og Eurovision hátíðin byrjuð hjá mér :) Ég er líka á leiðinni til Hollands í fyrramálið, það var bara ákveðið um 8 leytið í kvöld og ég fer kl tuttugu mín í átta í fyrramálið:) Millilendi í London og flýg svo þaðan til Amsterdam, jeij :) Sem þýðir að ég gat raðað niður atkvæðum á Silvíu Night :)Hlakka ekkert smá til en verst að hann Addi minn verður aleinn eftir heima:(Annars gengu prófin svona ágætlega, á ekki von á góðum einkunnum en vonandi reddaðist þetta... engar einkunnir komnar svo ég bíð bara spennt :)
en hef þetta ekki lengra í bili:)
endilega að kvitta
bæjó
2 búin 2 eftirElísa Kristín Arnarsdóttir
Jæja þá er maður hálfnaður í prófum en samt tæpur hálfur mánuður eftir... ekki gaman þegar þetta dreifst svona lengi en það er svo sem ágætt þegar maður hefur lítið sem ekkert lært í vetur..Var í efnafræðiprófi í morgunn og það gekk svona lala... fæ kannski 3 og alls ekki meira en 6. Má segi að ég sé bara heppin ef ég næ, þetta var frekar erfitt próf og náttúrulega eina efnið sem ég gleymdi að læra kom í 2 dæmum! hehe ég get ekki hætt að hugsa um þetta bévítans próf, en ég gæti tuðað næstu daga og það myndi engu breyta:)
En ég ætla bara að fara að ganga frá efnafræðinni og vonandi þarf ég ekki að taka þetta upp úr kössunum í haust:)
Bestu kveðjur
Ella gella
p.s. Ég var útnefnd fullorðin í iníánaættbálknum mínum í gær og því fylgdi nýtt nafn. Þegar ég var unglingur og barn hét ég Litla eyra, ljóta tá en hef fengið nafnið Stórurassa snillingur sem er á ensku BigAss Genius:) beautiful name :)
PrófElísa Kristín Arnarsdóttir
Jæja þá fer ég í 1. prófið af 4 á eftir. Stemmningin er ágæt svo sem, held að þetta verði ekkert fall... spurning hversu einkunnin verði góð samt:/ en allt fyrir ofan 5 er gott fyrir þessa önn, er búin að vera svo helv. löt að læra sem gerist ekki aftur :) lofa... ég sit hérna í læriherberginu mínu með Robbie Williams í eyranu syngjandi We are the Champ. mjög gott lag :) Svo fékk ég líka í tölvuna mína í gærkvöldi lagið með Mary J. Blige og U2, one:) Það er æði, algjör snilld :)næsta próf er svo lífræn efnafræði, er ekki alveg seif með að ná því, því miður. Öll þessi elskulegu hvörf og efnasmíðar, jeminn eini. Ég er nú samt ekkert stressuð fyrir það miðað við bitfræðiprófið:/ Ég er ekki byrjuð að lesa bókina, er búinað lesa einhverjar glósur en man takmarkað þannig að það verður forvitnilegt að sjá hvort maður nær því eða ekki:/ sé mjög eftir því að hafa ekki byrja að lesa það aðeins fyrr en svona er þetta stundum. Svo eru prófin frekar þung, spurt út í mjög mikla smámuni og jafvel það sem var farið einna mest í og manni finnst skipta tja öllu máli er bara algjörlega sleppt :/ ekki gott...
En ég ætla að fara að undirbúa mig fyrir þetta próf :)
munið að kvitta börnin góð... þó það væri bara að setja nafnið:) hehe
kv Elísa
byrjunarörðuleikarElísa Kristín Arnarsdóttir
kann einhver að segja inn link á aðrar síður:) ???Nýtt bloggElísa Kristín Arnarsdóttir
jæja ég ákvað að vera eins og allir aðrir og fá mér nýtt blogg :) Þessa dagana er ég á fullu í próflestri þannig að ég hef svo sem ekkert skemmtilegt að segja:) Páskarnir voru góðir og hlakka ekkert smá til að fara norður í sumar:) svo er nú orðið stutt í hann Robbie minn í Amsterdam:) Ohh hvað það verður ljúft að komast í smá sumarfrí í sól og hita í Hollandi og ekki verra að fá að berja kyntröllið mikla augum:) lovlí:)Endilega kvittið á mitt nýja frábæra blogg:)
Kv Elísa